Kort sem breytti heiminum: Kólerufaraldrar í Evrópu marka upphaf notkun landupplýsinga í smitrakningu.

Í pistlaröðinni “Kort sem breytti heiminum” mun ég líta til merkra korta sem hafa átt þátt í að breyta ásýnd eða móta heiminn á einhvern hátt og segja lítillega frá þeim og það sem þau gerðu.
Í þetta sinn verðum við að ferðast aftur til miðrar 19. aldar og hverfa suður á bóginn, nánar tiltekið til Norður Evrópu. Á þeim tíma plagaði kólera Evrópu og frá árunum 1817 til 1899 brutust út 6 kólerufaraldrar. Sá þriðji, árið 1846 var líklega sá skæðasti og er hann talinn hafa leitt til meira en tveggja milljóna dauðsfalla í Asíu og Evrópu.
Eitt kort er tengt útbreiðslu kóleru í Soho í London árið 1854. Kortið hefur verið eignað breska lækninum John Snow og það er í dag eitt frægasta kort sem gert hefur verið og þá sérstaklega meðal faraldsfræðinga og landfræðinga. En kortið sjálft varð ekki til í tómarúmi. Við skulum kafa aðeins í söguna í kringum kortið og forvera þess.
John Snow var læknir í London á þessum tíma. Kort hans og vinna í tengslum við útbreiðslu og smit kóleru hefur orðið til þess að hann er oft talinn faðir faraldsfræðinar. Við komum að honum aðeins síðar, en fyrst skulum við hoppa aðeins lengra aftur í tímann. [1][2]

Kort voru vissulega notuð til landupplýsingamiðlunar á þessum tíma. Mjög merkilegt og frægt slíkt kort er teiknað af franska landfræðingnum
Charles Picquet. Á korti hans er öll París undir. Þar hefur hann litað öll 48 svæði Parísarborgar eftir útbreiðslu kóleru. Risastórt verk sem kortlagði vel útbreiðslu kóleru í París. [3]
Einnig voru landfræðingar sem kortlögðu einstaka kólerutilfelli eftir staðsetningu sjúklinga. Læknirinn Thomas Shapter sýndi í bók sinni um kólerufaraldur í Exeter í Bretlandi, þar sem sýnd eru öll heimili þar dauðsföll áttu sér stað vegna kóleru í Exeter á árunum 1832-34. Eins kort af Rouen í Frakklandi frá 1833, gert af lækni þar í bæ, Eugéne-Clément Hellis. [4][5]
Á þessum tíma voru heilbrigðisstarfsmenn og veirufræðingar að læra um kóleru og smitleiðir hennar; hvað veldur henni, hvernig dreifir hún sér? Og þar með reyna að skilja hvernig hægt væri að halda henni í skefjum. Margar tilgátur voru á lofti um útbreiðslu kóleru, t.d. loftsmit, vond lykt (miasma), snertismit o.flr.

Snúum sögunni aftur að John Snow. Hann skrifar bók um smitleiðir kóleru árið 1849 þar sem hann kemst að þeirri niðurstöðu að kólera smitist frá sýktum einstakling til annarra og líka á milli sýktra svæða. Hann útilokar þannig loftsmit og lyktarsmit (miasma). Hann einblínir á meltingarfærin í bókinni og dregur þá ályktun að kólera smitist í gegnum mat og drykk og hann raunar tók eftir því að verst sýktu svæðin voru þar sem skólp og
úrgangsvatn komst nálægt eða í snertingu við drykkjarvatn.
Á þeim svæðum [þar sem skólp og drykkjarvatn eru nálægt hvort öðru] smitast efni úr skólpi í drykkjarvatnið. Kóleru mátti finna í nær öllum þeim húsum sem nýttu það vatn, en engum öðrum. [6]
Fimm árum eftir að bókin kom út, árið 1854, braust út faraldur í Soho í London. John Snow fær þá kortagerðarmann að nafni Charles Cheffins til að teikna upp kort fyrir sig af svæðinu. Kortið svipar svolítið til fyrri korta kólerusmita þar sem dauðsföll eru merkt eftir staðfangi, nema John Snow merkir hvert dauðsfall frekar en húsið. Það má sjá strik við göturnar og hvert strik táknar dauðsfall. Hann lætur einnig teikna vatnsbrunna inn á kortið, eitthvað sem ekki hafði sést á öðrum kortum tengdum veikinni.
Með rannsóknum sínum á sjúkdómnum og notkun korta, áttaði hann sig fljótt á því þegar hann rýndi kortið, að flest þau heimili sem sýkt voru af kóleru, sóttu vatn í sama brunninn. Snow fór með þessa niðurstöðu til ráðamanna í London sem létu loka brunninum og stöðvuðu þar með frekari útbreiðslu kóleru í Soho. Síðar var smitið rakið til bleyju af kólerusýktu barni sem skoluð var í rotþró nálægt brunninum.


Þetta er talið fyrsta heppnaða notkun landupplýsinga í faraldsfræðum og með fyrstu alvöru rýmisgreiningum í kortagerð. Það eru til eldri dæmi og má þar nefna kort sem sýnir útbreiðslu mýgulusóttar í New York m.t.t. staðsetninga sorpstaða árið 1795. Þar var kortahöfundur, Valentine Seaman, þess fullviss að sorphaugar hefðu eitthvað með útbreiðslu að gera, sem reyndist að hluta til rétt, því moskítóflugur sem urpu í pollum á haugum smituðu þá sem staðina sóttu af mýgulu, frekar en að ruslahaugarnir sjálfir stæðu að baki veikinni. [7]
Kort John Snow er eins konar goðsögn í kortaheiminum og hefur oft fengið meira kredit en það á inni, en breytti það heiminum? Svo sannarlega. Það sýndi fram á það hvernig landupplýsingar geta átt stóran þátt í upplýstri ákvarðanatöku. Í dag eru rýmisgreinigar og alls kyns landupplýsingar notaðar oft á dag við ákvarðanatöku í öllum geirum stjórnsýslu og atvinnulífs.
Hemildir og frekara lesefni
[1] The Guardian - John Snow's data journalism: the cholera map that changed the world
[2] Maps.com - Snow Mistake: Correcting Myths in the Mapping of Cholera
[3] Louis-François Benoiston de Châteauneuf - Rapport sur la marche et les effets du choléra-morbus dans Paris et les communes rurales du département de la Seine
[4] Thomas Shapter - The history of cholera in Exeter in 1832
[5] Eugene-Clément Hellis - Le choléra à Rouen en 1832
[6] John Snow - On the mode of communication of cholera
[7] Valentine Seaman - An inquiry into the cause of the prevalence of the yellow fever in New-York
Myndir:




Comments