Umdeildasta ferðalagið síðan fyrir Krists burð?


Nú um mundir er útfærsla bresk-bandaríska leikstjórans Christopers Nolan af Ódysseifskviðum í sýningum í bíóhúsum landsins. Myndin hefur hlotið mikla umfjöllun og aðsókn hér á landi, enda tilefni til. Ódysseifskviður eru seinni hluti Hómerskviða, elstu rituðu sagna forngrikkja.
Kviðurnar hafa verið innblástur skálda, málara, tónsmiða, leikstjóra og svo mætti lengi telja, síðan þær voru ritaðar, fyrir að verða 3 þúsund árum síðan. En þær eiga líka heiður að því að vera eitt elsta þrætuepli landfræðinga.
Sjáið til: Ódysseifskviður fjalla um ferðalag Ódysseifs heim frá Trójustríðinu. Við ætlum ekki að dvelja mikið við þann atburð, fyrir utan þær sakir að Trója er talin hafa staðið suðvestan við Dardanellasund í Tyrklandi, sem tengir Eyjahaf og Marmarahaf.
Ódysseifur sjálfur var konungur Íþöku. Menn í raun greinir örlítið á hvar Íþaka Ódysseifs var, en það er til eyja í Jónahafi sem heitir Íþaka, því skulum við halda okkur við það. Það skiptir í raun ekki máli þegar tímalínan er skoðuð, því lang flestir eru sammála um að Íþaka kviðunnar sé í Jónahafi, því hafa fræðimenn velt því fyrir sér: Hvernig gat Ódysseifur verið 10 ár að ferðast frá Tyrklandi í Jónahaf, vestan Grikklands? Gengur ferðalagið upp landfræðilega? Og ef svo, hvaða leið fór hann?
Margir hafa reynt að kortleggja ferðalag Ódysseifs frá Tróju til Íþöku og, eins og gefur að skilja, eru fræðimenn ekki á eitt sammála um þá leið, frekar en annað tengt kviðunni.
En það er allt hluti af deilunni, og hefur sú deila staðið frá því fyrir Krists burð. Eratosþenes (dáinn ca. 194 f.kr), sem oft er talinn fyrsti landfræðingurinn, og er hvað frægastur fyrir að vera fyrstur til að reikna ummál jarðar, var á þeirri skoðun að Ódysseifskviða hefði enga landfræðilega merkingu. Hann sagði að Ódysseifskviða væri ljóð, og væri tilgangur þess að skemmta, ekki fræða. Fræg er tilvitnun frá honum um landfræði Ódysseifs;

"þú finnur vettvang flakks Ódysseifs þegar þú finnur skósmiðinn sem saumaði saman vindpokann"
Vitnar hann þar í vindpokann sem kom Ódysseif og áhöfn hans í eina af sínum fjölmörgu klípum (vindpokinn kemur þó ekki fram í túlkun Christopher Nolans). [1]
Annar grískur máttarstólpi í upphafi landfræðinnar sem fræðigreinar, Strabon, mótmælti túlkun Eratosþenesar, þó 200 árum síðar, og hélt því fram að Hómer væri í raun fyrsti landfræðingurinn. Ódysseifskviður væru í raun sönn saga, sem innihéldi smá skáldskap, frekar en öfugt. Deilur þeirra félaga, ef deilur skildi kalla af hálfu Eratosþenesar, eru í raun enn við lýði. [1][2]
Lengi hefur verið reynt að finna út úr ferðalagi Ódysseifs með myndrænum hætti og er eitt frægasta kortið af ferðum Ódysseifs yfir 400 ára gamalt, frá 1597. Það var flæmski kortagerðarmaðurinn Abraham Ortelius sem smíðaði það í leit sinni að svörum við ferðalagi Ódysseifs. Ortelius gerðist í raun svo djarfur að hann bætti við eyju vestur af Korfú, sem ekki er til í alvörunni. Eyja sú birtist svo ítrekað á kortum alveg fram á 20. öldina.

Árið 1912 fór svo franskur pólitíkus, Victor Bérard, í reisu og reyndi að ferðast sömu leið og Ódysseifur. Hann staðsetti eyju Kalypsó mjög vestarlega í Miðjarðarhafi, nálægt Gíbraltar (Þó ekki jafn vestarlega og Strabon sem hafði sagt hana í Atlantshafi). [3]
Á fyrri hluta 20. aldar komu texta- og Hómerfræðingarnir Milman Parry og Albert Lord með þá kenningu að Hómerskviður hefðu verið munnleg sagnageymd það lengi að hún hafi þróast með eldri sögum og staðbundnum sögum sjófarenda og væri orðin ein frásögn, sem útskýrir þá hvers vegna það hefur reynst erfitt, ef ekki ómögulegt að vera sammála um landfræðina.[4][5]
Enn ein kenning kemur frá breska texta- og fornfræðingnum Martin West, sem hefur rannsakað Hómerskviður síðan síðari hluta 20. aldar. Hann segir söguna bera merki þess að vera enn í mótun og landfræðilegar staðsetningar hafi því tekið breytingum í gegnum árin. Hann bendir einnig á að á einhverjum tímapunkti færist sögusviðið frá raunverulegum staðsetningu (Tróju, Íþöku, Þrakíu, o.s.frv) yfir í heim samofinn mesópótamískri og forngrískri goðafræði. Því sé í raun ekki hægt að kortleggja ferðir Ódysseifs. [6][7]
Deilan lifir í dag helst í ferðaþjónustunni. Við Messínasund, þar sem flestir staðsetja Skyllu og Karybdis úr sögunni, hafa fræðimenn rannsakað hvernig Ódysseifskviða heldur áfram að móta sjálfsmynd svæðisins og hvernig íbúar, ferðaþjónusta og staðarheiti spili áfram með hugmyndinni um að þessi staður* sé í raun “hinn eini sanni” vettvangur kviðunnar.[8][9]
Þar hafið þið það. Löngu áður en þið fóruð í bíó og veltuð því jafnvel fyrir ykkur hvort sagan væri byggð á raunverulegum staðsetningum, löngu áður en kortin sem fylla netið af ferðalagi Ódysseifs komu til sögunnar. Sat maðurinn sem fyrstur var að mæla ummál jarðar og velti þessum sömu spurningum fyrir sér, og margir síðan.
*Staður er eitt af grunnhugtökum landfræðinnar. Ef þú hefur gaman af landfræði og djúpum pælingum mæli ég eindregið með að þið skoðið hugtakið staður (e.place) út frá landfræðilegum kenningum og tilgátum. Þar er hægt að eyða heilu dögunum í endalausri skemmtun.
Heimildir og frekara lesefni
[1] Strabon, Geography, Bók I
[2] Lawrence Kim, The portrait of Homer in Strabos Geography
[3] Victor Bérard, The Phoenicians and the Odyssey
[4] Milman Parry, safnrit af heimasíðu Harvard (https://library.harvard.edu/collections/milman-parry-collection-oral-literature)
[5] Albert Lord, The singer of tales
[6] Martin West, The east face of Helicon
[7] Martin West, Odysseus re-routed
[8] Marco Benoit Carbone, Geographies of Myth and Places of Identity: The Strait of Scylla and Charybdis in the Modern Imagination
[9] Catherine Connors, Myth, Geography, and Ethnography at the Strait of Messina
Kviður Hómers í þýðingu Sveinbjörns Egilssonar




Comments