Þjóðin sem hóf langhlaup sitt á ólympíuleikum.

Árið 1964 voru sumarólympíuleikarnir haldnir með pompi og prakt í Tókýó í Japan. Þessir ólympíuleikar voru merkir fyrir margra hluta sakir, til að mynda var þetta í fyrsta sinn sem leikarnir voru haldnir í Asíu og í fyrsta sinn sem leikarnir voru sendir um allan heim í sjónvarpstæki, um gervihnetti. Það er þó fyrir aðrar sakir sem skrifað er um ólympíuleikana í Tókýó á þessa síðu.
Um miðja 20. öldina voru róstursamir tímar í Afríku. Nýlendutíminn var að líða undir lok og álfan að undirganga stórar breytingar. Til að mynda var þetta í fyrsta sinn sem Suður-Afríku var meinuð þátttaka á leikunum vegna aðskilnaðarstefnu sinnar, sem þó átti eftir að vera við lýði næstu 30 árin.
Lönd og landsvæði öðluðust sjálfstæði, börðust eða voru að berjast fyrir tilverurétti sínum og sjálfstæði, og eru sumpart að því enn þann dag í dag. Eitt slíkra svæða í sunnanverðri álfunni hafði verið undir nýlenduyfirráðum Breta; Norður-Ródesía.

Í rosalega stuttu máli sagt var Norður-Ródesía verndarsvæði undir yfirráðum Breska
Suður-Afríkufélagsins. Það var stofnað 1911 með sameiningu tveggja annarra verndarsvæða félagsins í álfunni (Barotziland-Norðvestur-Ródesíu og Norðaustur-Ródesíu). Árið 1923 tóku bresk stjórnvöld við yfirráðum yfir svæðinu og 30 árum síðar, 1953, var stofnað Sambandsríki Ródesíu og Nýasalands, sem þá innihélt, ásamt Norður-Ródesíu, Suður-Ródesíu og Nýasaland, sem einnig var verndarsvæði Breska Suður-Afríkufélagsins. Sambandsríki þetta var ekki langlíft og leið undir lok árið 1963 og öll svæðin fengu aftur fyrri stöðu, þ.e.a.s. Norður-Ródesía varð aftur sérstakt verndarsvæði.
Þá erum við komin mjög nálægt ólympíuleikunum í Tókýó í tíma. Leikarnir voru settir seint á árinu til að forðast steikjandi sumarhita Tókýó, eða þann 10. október og lokaathöfnin fór fram 24. október. Norður-Ródesía sendi 12 keppendur sem gengu inn með skjaldarmerki og fána þjóðar sinnar á opnunarhátíðinni. Þetta voru fyrstu ólympíuleikar Norður-Ródesíu en boxarinn Abe Bekker frá Norður-Ródesíu tók þátt í leikunum 4 árum áður og keppti þá undir fána Ródesíu.
Heima fyrir blésu vindar breytinga. Sambandsríkið hafði liðið undir lok árinu á undan og í kosningum sem fram fóru í Norður-Ródesíu í janúar 1964 vann flokkur Kenneth Kaunda (United National Independence Party) afgerandi sigur og hreinan meirihluta. Síðar það ár, nánar tiltekið 24. október 1964, hlaut Norður-Ródesía sjálfstæði frá Bretum og breytti um bæði nafn og þjóðfána, sama dag og lokaathöfn ólympíuleikanna í Tókýó fór fram.
Íþróttamennirnir 12, sem gengu inn á ólympíuvöllinn í setningu leikanna þann 10. október undir fána og merkjum Norður-Ródesíu, gengu út af ólympíuleikunum, í lokaathöfn, undir fánum og merkjum nýs ríkis í Afríku, Sambíu. Þetta er í fyrsta, og eina, skiptið sem land hefur þátttöku á ólympíuleikum sem eitt ríki en yfirgefur þá sem annað.

Heimildir og frekara lesefni
Í þetta sinn er þetta samtýningur af wikipedia greinum.
Ekki alveg tæmandi listi hér að neðan, en svona í grófu:




Comments