Sameinuðu þjóðirnar sýna rétta stærð Afríku

Updated: Sep 6
Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna kaus í dag um ályktun Tógó, sem studd var af Afríkusambandinu, um að skipta út Mercator vörpun í kortum fyrir, það sem á ensku er kallað Equal Earth vörpun.
Ályktunin var samþykkt með miklum yfirburðum eða 164 atkvæðum. 6 sátu hjá en aðeins 1 þjóð, Bandaríkin, kusu gegn henni.

Hreyfingin Leiðréttu kortið (e. Correct the map) hefur unnið að því að fá kortavörpun og kort leiðrétt lengi og má því gera því skóna að samþykki þessarar ályktunnar um að nota Equal Earth sé risa sigur fyrir Leiðréttu krotið hryfinguna og boðar líka breyttar áherslur í kortagerð, en af hverju skiptir þetta svona miklu máli?
Varpanir og þá sérstaklega Mercator vörpun hafa valdið togstreitu lengi. Mercator er í raun sú kortavörpun sem við flest þekkjum og tengjum við þegar við sjáum kort af jörðinni. Hún hefur notið gríðarlegra vinsælda síðan flæmski kortagerðarmaðurinn Gerhard Mercator þróaði hana árið 1569 fyrir siglingar. Mercator er hornsönn sívalningsvörpun, sem þýðir að allar stefnulínur eru beinar á kortinu. Sú vörpun hentaði því mjög vel til siglinga og hefur verið algengasta alheimsvörpunin í all langan tíma.

En þar sem þetta er sívalningsvörpun skekkir hún heimsmyndina all verulega. Það hefur aldrei þótt auðvelt verk að varpa kúlu á blað. Gott og gamalt dæmi sem einhverjir hafa eflaust tekist á við í vörpunarverkefni á sinni skólagöngu er að rífa börk af mandarínu og reyna að gera svo flatt “kort” af mandarínunni með berkinum. Það þarf ekki margar mandarínur áður en viðkomandi áttar sig á því að þetta sé nánast óvinnandi verk. Þetta er í raun hausverkur allra kortagerðamanna; að teikna hnöttinn á flatt blað.
Sívalningsvörpun er best að ímynda sér þannig að tekið sé blað og því rúllað þétt utan um kúlu. Yfirborð kúlunnar er svo fært á blaðið í beinni línu lóðrétt m.v. blaðið. Slík aðferð skekkir flatarmál all verulega því ofar/neðar sem farið er á kúluna og er í raun aldrei hægt að teikna pólana í réttri Mercator vörpun því þar er kvarðinn á kortinu orðinn óendanlega stór.
Algengasta dæmið fyrir þessari skekkju, og sú sem hreyfingin Leiðréttu kortið hefur bent á, er sú að Grænland, sem er vissulega risastórt, er teiknað margfalt stærra en það er í raun og veru. Ef þú berð saman Grænland og alla heimsálfuna Afríku á Mercator korti eru það landmassar af svipaðri stærð. Raunin er önnur því Afríka er um 14 sinnum stærri en Grænland sem er á stærð við Kongó.

Það hefur því tíðkast að teikna valdamikil landsvæði stærri en þau eru. Það er langstærsta ástæða þess að barist hefur verið gegn Mercator vörpun svo árum skipti, þar sé í raun verið að teikna upp skakka heimsmynd og ráðandi öfl í heiminum teiknuð stærri en þau eru í raun og veru.
Vinsældir Mercator vörpunar fóru dvínandi á síðustu öld, og þá sérstaklega vegna þeirrar ástæðu sem nefnd er hér að ofan. En með tilkomu vefkorta og internetsins tóku vinsældir Mercator kipp og eru öll stærstu vefkortin kortin teiknuð í vef-Mercator vörpun.
Mercator vörpunin er einnig ein algengasta aðferðin til þess að ljúga með kortum, einfaldlega því hún er algengasta kortavörpunin, því stærðir landsvæða verða ýktari því fjær miðbaug sem farið er. Þá gerum við því einnig í skóna að öll kort ljúgi, því hin fullkomna vörpun er ekki til og endar alltaf með því að fórna annaðhvort stærð eða lögun. Equal Earth t.d. bjagar lögun landa því norðar/sunnar á jörðina sem farið er, en þó merkilega lítið.




Comments