top of page

Fyrsta Loftmyndaflugið á Íslandi

Writer: Haukur Árni Björgvinsson
Haukur Árni Björgvinsson
Apr 22, 2020
1 min read

Updated: Jul 24

Verkefnið Danmark på film er skemmtilegt verkefni sem Danska Kvikmyndastofnun (d. Danske Filminstitute) rekur. Þar má finn aragrúa af myndböndum frá Danmörku, Færeyjum, Grænlandi og Íslandi.

Eitt af þeim myndböndum sem finn má er myndband af loftmyndaflugi sem farið var um Norður- og Vesturland sumarið 1937. Það var stórmerkilegt fyrir margra sakir en í dag er þess helst mynst sem fyrsta loftmyndaflug sem farið var yfir Íslandi. Sjón er sögu ríkari og er eindregið mælt með að taka sér hálftíma í að horfa á þetta myndband.



Í texta með myndbandinu segir:

LANDMÆLINGAR Á ÍSLANDI 1937: Kortlagning á Íslandi með landmælingum úr lofti. Markmiðið er að ljósmynda allt Norður- og Vesturland. Leiðangursmenn leggja úr höfn með M/S Dronning Alexandrine frá Islands plads í Kaupmannahöfn þann 20. maí 1937. Koma til Reykjavíkur: Skipið „Hvidbjørnen“ og sjóflugvél af gerðinni Heinkel nr. 84 eru undirbúin fyrir brottför. Grønbæk lautinant flýgur vélinni en kapteinn Herschend kapteinn tekur ljósmyndir. Prófessor Nørlund er með í för. „Hvidbjørnen“ í Hvalfirði með sjóflugvélina á dekkinu. Lagt er í fyrsta flug yfir Viðey, austan Reykjavíkur. Flogið yfir Reykjavík. Leiðangurinn heldur för sinni áfram til Akureyrar. Á meðan flugvélin svífur yfir eru dagleg störf unnin um borð í „Hvidbjørnen“. Á leiðinni til baka til Reykjavíkur má sjá jökla. Skoðunarferðir leiðangursmanna: Vatnsaflsvirkjun við Sog, borun eftir heitu vatni – hveravatn nýtt til þvotta og sem baðaðstaða undir beru lofti. Laxveiðar í Laxá. Skipið „Kría“ sést á leið sinni til Grænlands. Þingvellir: Öxarárfoss, Blómagjá, Peningagjá (Nikulásargjá), Gullfoss, Geysir og aðrir staðir. Þann 18. september er leiðangurinn kominn aftur til Kaupmannahafnar eftir að hafa flogið yfir 40.000 ferkílómetra lands.



Comments


bottom of page